Innskráning í Karellen
news

Starfsdagur 20. október 2017

25. 09. 2017

Kæru foreldrar!

Nú auglýsum við seinni starfsdaginn okkar á haustönn leikskólans, sem er föstudagurinn 20. október 2017.

Þá verður leikskólinn lokaður og kennarar skipuleggja enn frekar vetrarstarfið og viða að sér þekkingu.

Haustráðstefna Leikur að læra verður þennan dag og ber yfirskriftina Hreyfing og nám leikskólabarna.

Þangað mun allt starfsfólk í LAL leikskólum mæta til að fræðast og endurmennta sig.

Leikur að læra er kennsluaðferð þar sem börnum á aldrinum tveggja til tíu ára eru kennd öll bókleg fög í gegnum leiki, hreyfingu og skynjun á skipulagðan, líflegan og árangursríkan hátt.

Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur :)



© 2016 - Karellen