Innskráning í Karellen
news

Starfsdagar á vorönn 2024

27. 03. 2024

Kæru foreldrar!

Þessa vorönn 2024 eru einungis tveir starfsdagar eftir á þessu skólaári hjá okkur á Gimli.

Sá fyrri verður föstudaginn 26. apríl og sá seinni föstudaginn 10.maí.

Eftir foreldrakönnunina sem tekin var af Skólapúlsinum í febrúar sl. fengum við nokkrar athugasemdir varðandi starfsdagana. Þar kom m.a. fram að við myndum tengja okkur við starfsdaga Njarðvíkurskóla ef það gæti hentað Gimli. Einnig að vera líka með starfsdaga á öðrum dögum en föstudögum.

Við ætlum að sjálfsögðu að hlusta á ykkur kæru foreldrar. Við undirbúning á komandi skóladagatali 2024 - 2025 munum við hafa þessar athugasemdir í huga.

Að lokum þökkum við ykkur kæru foreldrar fyrir góða þátttöku í foreldrakönnun sem og jákvæð og hlý orð í garð skólans.

Hlýjar kveðjur.

Kennarar á Gimli.

© 2016 - Karellen