Innskráning í Karellen
news

Starfsdagar

07. 09. 2018

Kæru foreldrar!

Þessa haustönnina eru tvær ráðstefnur í október sem tengjast okkar fagstarfi á Gimli. Það er hin árlega ráðstefna á vegum Hjallastefnunnar sem verður þann 5. október og árleg ráðstefna Leikur að læra þann 19. október.

Fyrir starfsmannahópinn á Gimli er mikilvægt að mæta á báðar ráðstefnurnar til að bæta, þróa og viðhalda faglegu starfi í leikskólanum. Þessir dagar verða því lokaðir vegna starfsdaga kennara.

Það er ekki ósk okkar stjórnenda á Gimli að þessir dagar beri báðir upp á sama mánuð og biðjumst við velvirðingar á því, en þess má geta að það verða ekki fleiri starfsdagar þessa haustönn eða fram að áramótum.

Með bestu kveðju og von um góðan skilning,

Karen Valdimarsdóttir leikskólastýra

© 2016 - Karellen