Kæru fjölskyldur!
Við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið njótið vel saman í páskafríinu.
Minnum á að á morgun 16. apríl fer stór hluti af kennarahópnum hér á Gimli í námsferð til Brighton. Þar munum við fara á námskeið í útikennslu þar sem við munum verja heilum degi í skógi. Einnig förum við á námskeið í frásagnargleði (storytelling) og núvitund barna (wellbeing).
Þetta verður án efa lærdómsrík ferð og gott hópefli, þar sem við munum læra ýmislegt nýtt sem við getum bætt við í okkar skóla. Leikskólinn verður því lokaður vegna starfsdaga kennara þriðjudaginn 16. og miðvikudaginn 17. apríl í dymbilvikunni.
Með bestu páska-og kærleikskveðjum frá okkur starfsfólki á Gimli