Kæru foreldrar!
Sumarhátíð leikskólans Gimlis verður miðvikudaginn 29. júní.
Dagskrá:
Skrúðganga kl. 09:30 - Nemendur og kennarar opna hátíðina með skrúðgöngu um nágrenni leikskólans.
Í boði foreldrafélagsins verða hoppukastalar á útisvæðinu og ísbíllinn mætir einnig á svæðið eftir hádegi.
Skemmtilegar og fjölbreyttar stöðvar verða í boði á útisvæði ásamt andlitsmálningu.
Starfsfólk grillar pylsur í hádegisverðinum og í boði verða frískandi og sumarlegir ávextir í eftirrétt.
Sumarhátíðn er eingöngu fyrir nemendur og starfsfólk leikskólans.
Með sumarkveðju,
Kennarar á Gimli