Innskráning í Karellen
news

Leiksýning í boði foreldrafélagsins

12. 12. 2023

Foreldrafélagið á Gimli bauð nemendum upp á skemmtilega leiksýningu sl. föstudag. Leikin voru vel valin atriði úr sýningunni Drottningin sem kunni allt nema …. sem sýnd er í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Halla Karen Guðjónsdóttir sem fer með eitt af aðalhlutverkunum mætti til okkar, en hún leikur sjálfa drottninguna hana Bambalínu og mætti hún með hundinn sinn hana Snúllu sem er líka í leiksýningunni. Nemendur voru duglegir að þátt í söngnum með henni Bambalínu og voru alveg til fyrirmyndar. Bambalína kom svo í heimsókn á hvern kjarna og vakti það mikla kátínu allra.

Halla Karen fór alveg á kostum og skemmtu allir sér konunglega, bæði nemendur og kennarar. Við þökkum Höllu Karen og Snúllu kærlega fyrir komuna og foreldrafélaginu fyrir frábæra sýningu.

© 2016 - Karellen