Innskráning í Karellen
news

Jólasöngfundur

19. 12. 2023

Föstudaginn 15. desember vorum við með jólasöngfund.

Útgarðs nemendur voru með atriði á söngfundi og léku jólasveinana, Grýlu, Leppalúða, jólabörn, jólaketti og engla undir lestri kvæðanna um þau eftir Jóhannes úr Kötlum. Ótrúlega vel gert hjá þeim öllum og þvílíkir snillingar!

Að leikþættinum loknum fengum við foreldraframlag frá Atla Sigurði pabba Dagbjartar Helgu. Hann mætti með gítarinn og söng með okkur jólalög. Vel var tekið undir sönginn og mikið fjör hjá nemendum og kennurum.

Í hádeginu fengum við hangikjöt með öllu tilheyrandi meðlæti.
Dásamlegur dagur í alla staði


© 2016 - Karellen