Þriðjudaginn 13. júní voru Hvatningarverðlaun Reykjanesbæjar afhent við hátíðlega athöfn í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ þar sem okkar góði og gefandi fræðslustjóri Helgi Arnarson ávarpaði salinn á sinn einstaka hátt með þakklæti og virðingu.
Sautján verkefni voru tilnefnd og hlutu fjögur þeirra sérstaka viðurkenningu og vorum við svo lánsöm á Gimli að vera eitt þeirra með Sibbu okkar verkefnastýru í fararbroddi.
Viðurkenningin var fyrir verkefnið Jóga- og núvitund í vettvangsferðum sem er fallegt og vandað samfélagslegt verkefni sem fellur vel að okkar Heilsueflandi bæjarfélagi Reykjanesbæ.
Fyrir ykkur sem viljið kynna ykkur nánar þá er hlekkur á verkefnið hér gimlijoga.is
Lesið með gleði og von um að þið munið njóta og fræðast í okkar fagra og friðsæla umhverfi/bæjarfélagi.