Lota 6 – Áræðni.
Mánudaginn 14. mars byrjum við í Áræðni lotunni. Þessari síðustu lotu
Þau lykilhugtök sem við vinnum með í þessari lotu eru: kjarkur, kraftur, virkni, frumkvæði. Það er alltaf gullni meðalvegurinn, að trúa á eigin getu en jafnframt vera ekki með yfirgang við vini sína eða vinkonur. Þetta gerum við í gegnum allt okkar daglega starf, einnig með umræðum, sögum og söngvum. Leikur barna er afar mikilvægur því þar vinna þau úr sinni reynslu og upplifunum, æfa samskipti og orðaforði eflist. Á valtímum á hverjum degi geta börnin valið um fjölbreytt svæði þar sem þau leika saman. Það er dásamlegt að fylgjast með leik barna og sjá þau vinna úr sínum upplifunum og reynslu. Einnig hvernig þau æfa færni sína í að vinna úr ágreiningi og ræða saman. Við kennararnir stöndum á hliðarlínunni, fylgjumst með og aðstoðum ef einhver ,,ruglast,,. Þá gengur bara betur næst.