Kæru foreldrar
Við viljum minna á að í júlí eru ekki innheimt leikskólagjöld þess í stað verða dagarnir í júlí innheimtir með ágúst leikskólagjöldum.
Leikskólinn Gimli verður lokaður frá 7. júlí til 10. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Með von um að veðrið leiki við okkur í fríinu og allir uni vel samverunnar með fjölskyldu og vinum. Hittumst aftur endurnærð og kát fimmtudaginn 11. ágúst 2022
Með sumar- og sólarkveðju,
Starfsfólk á Gimli