Innskráning í Karellen
news

Alþjóðlegi Downs dagurinn 2023

20. 03. 2023

Við fögnum fjölbreytileikanum á morgun Þriðjudaginn 21. mars en þá er alþjóðlegi Downs dagurinn. Þann dag er fólk hvatt til að klæða sig í mislita sokka í tilefni dagsins, fagna og sýna stuðning við margbreytileika mannlífsins. Eitt af markmiðum dagsins er að auka vitund og minnka aðgreiningu. Við munum að sjálfsögðu taka þátt og um leið nota tækifærið til að ræða um fjölbreytileika mannlífsins í sinni víðustu mynd því fræðsla og þekking eykur skilning og minnkar fordóma. Því eins og við ræðum svo oft um að við erum öll ólík en eigum rétt á virðingu, kærleika og tækifærum í lífinu. Þessi umræða rímar vel við jafnréttis- og lýðræðisstefnuna sem við vinnum eftir.

© 2016 - Karellen