Innskráning í Karellen
news

Velheppnuð páskagleði foreldrafélagsins

10. 04. 2017

Páskagleði á vegum foreldrafélagsins á Gimli s.l. laugardagsmorgun tókst með ágætum.

Fjöldi gesta gæddi sér á ljúffengum vöfflum og börnin hlupu um útisvæðið í leit að litríkum steinum sem þau skiptu út fyrir lítil páskaegg.

Þessi páskahefð er skemmtileg fjölskyldu -samvera og fær stjórn foreldrafélagsins bestu þakkir fyrir frábært framtak nú sem áður.

© 2016 - Karellen