Innskráning í Karellen
news

Styrkur úr Nýsköpunar-og þróunarsjóði

11. 06. 2020

Leikskólinn Gimli hlaut á dögunum styrk úr Nýsköpunar-og þróunarsjóði fræðslusviðs Reykjanesbæjar að upphæð 1.100.000 til verkefnisins: Jóga og núvitund í vettvangsferðum.

Þess má geta að jóga og núvitund hefur verið er ein af námsleiðum leikskólans frá árinu 2007, og undir handleiðslu Sigurbjargar eða Sibbu okkar kjarnastýru og jógaleiðbeinanda barna frá árinu 2012.

Sibba mun verða verkefnastýra þessa nýja verkefnis: Að iðka markvisst jóga og núvitund í vettvangsferðum nemenda og kennara.

Öll börn hafa fengið jógastund einu sinni í viku inni á sínum kjarna og nú ætlum við með þessu nýja verkefni að tengja jóga og núvitund nánar við umhverfismennt. Að stunda útivist þar sem jóga og núvitund er lögð til grundvallar, magnar skynjun okkar á umhverfnu og stuðlar að góðri andlegri og líkamlegri heilsu.

Helstu markmið verkefnisins er að vekja áhuga kennara fyrir jóga og núvitund í útiveru í öllu skólasamfélaginu og hverning við vinnum með jógastöður, öndun, slökun og núvitund á einfaldan hátt úti í nátturunni.

Ávinningurinn er að njóta náttúrunnar betur og upplifa breytileika hennar með því að taka betur eftir umhverfi okkar og skynja það. Við eflum hreyfingu sem eykur vellíðan og gleði og börn læra að tileinka sér þær aðferðir sem þau iðka í jógastundum inni.

Starfsfólk leikskólans eflir fjölbreyttan orðaforða, hugtakaskilning og stærðfræði í gegnum umræður, sögur og ævintýri sem unnið er með í hverri jógastund. Umræðurnar og sögurnar í jógastundum er fléttað saman við kynjanámskrá Hjallastefnunnar, þar sem áhersla er lögð á að efla einstaklings-og félagsfærni barnanna með ýmsum leiðum. Unnið er með orð hverrar lotu sem tengjast dyggðum, tilfinningum, sjálfstrausti, samkennd, samskiptum og vináttu. Merking orðanna eru rædd og þau sett í samhengi. Börnin æfa sérstaklega að setja sig í spor annarra. Innihald jógastundanna ber keim af því hvaða lota er í gangi hverju sinni. Þannig blandast saman hreyfing, orðaforðakennsla, núvitund og slökun.

Við kennarar erum þakklát fyrir þennan væna styrk sem Gimli hlaut og hlökkum til að vinna að þessu gefandi verkefni næsta skólaár 2020-2021.



© 2016 - Karellen