Innskráning í Karellen
news

Starfsdagur 19. október 2018

08. 10. 2018

Kæru foreldrar!

Eins og áður hefur komið fram verða báðir starfsdagarnir á þessari önn í októbermánuði, vegna tveggja ráðstefna sem mikilvægt er að við starfsmannahópurinn förum á.

Hin fyrri var sl. föstudag þ.e. ráðstefna Hjallastefnunnar og var hún mjög vel heppnuð, einstaklega fræðandi, gefandi og nærandi samvera.

Seinni ráðstefnan verður síðan föstudaginn 19. október hjá Leikur að læra og verður leikskólinn einnig lokaður þann daginn.

Við væntum þess að sú ráðstefna veiti okkur sem og fyrri, fróðleik og nýjar hugmyndir inn í leik og starf okkar, börnum og kennurum til heilla á skólaárinu 2018- 2019.

Með leik-og lærikveðJu :-)

Kennarar á Gimli


© 2016 - Karellen