Innskráning í Karellen
news

Slæm veðurspá

13. 02. 2020

Þar sem veðurspá er mjög slæm fyrir morgundaginn ( föstudaginn 14.febrúar) þá biðjum við foreldra/forráðamenn að skoða eftirfarandi.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.
Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Kær kveðja frá Gimli



© 2016 - Karellen