Sjálfstæðislotan er önnur lota haustannar samkvæmt kynjanámskrá Hjallastefnunnar.
Lotulyklar hennar eru sjálfstyrking, sjálfstraust, öryggi og tjáning og er eitt orð einkennandi fyrir hverja viku lotunnar.
Lotulykill þessarar viku er ,,sjálfstyrking‘‘. Athygli og hvatning til allra er kjarni þessarar lotu. Kennarar leggja sig fram við að nálgast hvern og einn nemanda og sannfæra bæði nemandann og fjölskylduna um óendanlegan vilja skólans til að hafa þennan einstakling í fyrsta sæti. Framsagnaræfingar eru góðar og þjálfun í að tjá tilfinningar er mikilvægur þáttur, t.d. að ræða um hvernig þeim líður þegar þau koma í skólann, teikna myndir og ræða um það sem er best í skólanum eða hvenær þeim líður illa og hvað hægt sé að gera í því. Beinar æfingar í jákvæðri tjáningu um sjálfa/n sig er frábært.