Dagur leikskólans var laugardaginn 6. febrúar en þar sem hann bar upp á laugardag fögnuðum við á Gimli deginum mánudag 8. febrúar.
Á þeim degi fyrir 71 ári, árið 1950, stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er því í 14. sinn sem deginum er fagnað. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki leikskóla, gildi hans fyrir þjóðarauð og alla menningu.
RannUng efndi til áhugaverðrar netráðstefnu þann 5. feb. þar sem menntamálaráðherra tilkynnti um handhafa Orðsporsins 2021. Orðið handhafi er hér í fleirtölu því hvatningarverðlaunin og hlýtur leiksskólastigið í heild sinni; leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk leikskólanna.
Það var mat valnefndar um Orðsporið að leikskólakennarar, stjórnendur og starfsfólk leikskólanna hafi sýnt ótrúlega elju og fagmennsku á tímum COVID-19. Leikskólarnir hafa unnið afar vel úr erfiðum aðstæðum með velferð og nám barna í algjöru fyrirrúmi.