Innskráning í Karellen
news

Fjölskylduframlag

12. 04. 2017

Sunnudaginn 9. apríl fengum við skemmtilegt fjölskylduframlag frá fjölskyldu Júlíu Söru á Útgarði.

Jón faðir hennar og Kalli móðurafi komu með stóra vinnuvél og sópuðu útisvæðið okkar á Gimli.

Á mánudaginn voru mikil fagnaðarlæti hjá kennurum og nemendum, þegar útisvæðið var orðið svona líka ljómandi hreint og fint.

Hjartans þakkir kæra fjölskylda fyrir hlýhug og ræktarsemi í garð skólans.



© 2016 - Karellen