Innskráning í Karellen
news

Dagur íslenska táknmálsins

12. 02. 2018

Dagur íslenska táknmálsins var 11. febrúar sl. Í tilefni af því er bókin „Einstök mamma" frí í rafrænu formi iBooks í febrúarmánuði.

Bókin Einstök mamma hlaut Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkurborgar sem besta íslenska frumsamda barnabókin árið 2008. Bókin fjallar um stúlkuna Ásdísi sem elst upp hjá heyrnarlausri móður. Höfundur lýsir á heiðarlegan hátt tilfinningum stúlkunnar, viðbrögðum samfélagsins við heyrnarleysi og skondnu og skemmtilegu fjölskyldulífi. Bókin kemur nú út uppfærð í rafrænni útgáfu með lesnum íslenskum texta og táknmáli. Bókin er jafnframt gefin út í fyrsta sinn á ensku og þýsku.


Margrét E. Laxness myndskreytir bókina og vinna myndir hennar ákaflega vel með sögunni. Einstök mamma er ætluð börnum í elstu deildum leikskóla og neðri bekkjum grunnskólans”. Falleg og sígild bók til að lesa með foreldrum fram eftir aldri.

,,Sagan er mjög vel skrifuð og sögð af einstöku næmi og skilningi á viðfangsefninu. Hún er vel til þess fallin að vekja umræðu um gildi fjölbreytileikans því dregnar eru upp hliðstæður við börn sem eiga foreldra af erlendum uppruna” Úr umsögn dómnefndar Reykjavíkurborgar 2008.

Lesin upphátt á íslensku og á táknmáli

https://itunes.apple.com/us/book/id1081902450

Einstök mamma

© 2016 - Karellen