Innskráning í Karellen
news

Bangsa- og náttfatadagur

22. 10. 2019

Alþjóðlegi bangsadagurinn

Í tilefni af Alþjóðlega bangsadeginum 26. október ætlum við að halda upp á daginn hér í leikskólanum á föstudaginn 25. október og hafa náttfata- og bangsadag. En þá mætum við í náttfötum með bangsa eða mjúkdýr að eigin vali.

Sagan á bak við þennan dag er eftirfarandi: Bangsadagurinn fellur ár hvert á fæðingardag Theodore ,,Teddy,, Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og er hann haldinn hátíðlegur víða um heim. Roosevelt var mikil skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum bjarnarhúni og sleppt honum. Washington Post birti skopmynd af þessum atviki. Búðareigandi einn í Brooklyn í New York varð svo hrifin af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear. Nú er þessi leikfangabangsi orðinn vinsæll leikfélagi barna um allan heim og er hann í aðalhlutverki þegar alþjóðlegi bangsadagurinn rennur upp.

© 2016 - Karellen